Sjálfvirk slökkvitæki fyrir rafmagnstöflur

ΑMFE – sjálfvirkt smáslökkvitækisem virkjast við 70°C

amfeBOLTI

 

 

 Afleiðingar eldsvoða eru oft hrikalegar og þá ekki einungis fyrir fólk sem verður fyrir beinum áhrifum af þeim, heldur einnig alla þá sem tengjast slíkum atburðum óbeint. Kostnaður vegna viðgerða og endurnýjunar á húsnæði og búnaði er eitt, en tjón getur líka hlotist af truflunum á þjónustu, eins og t.d. á rafmagni í húsum, þó eldsvoði teljist jafnvel minniháttar.

 AMFE er innbyggt, sjálfvirkt slökkvitæki sem bregst við eldsupptökum um leið og þau verða. Búnaðurinn er ekki aðeins mjög nettur heldur vinnur einnig á áreiðanlegan og sjálfvirkan hátt allan sólarhringinn. Hann er notaður til að slökkva eld á fyrstu stigum hans, s.s. í rafmagnstöflum og öðrum rafbúnaði sem ekki er auðvelt fyrir fólk að nálgast.

 AMFE hefur verið þaulprófað með tilliti til titrings og umhverfisáhrifa á borð við hita- og rakastig auk þess að standast álagspróf.

 Inniheldur hvorki eiturefni né ætandi efni, leiðir ekki, skilur ekki eftir leifar eftir virkjun og hefur hvorki áhrif á ósonlagið né hlýnun jarðar.

 AMFE er lítið og nett slökkvitæki sem virkjast við 70°C og hentar fyrir flestar gerðir af rafmagnstöflum. Það fæst í tveimur stærðum, 24 ml fyrir heimili og 70 ml sem er hentugt fyrir rafmagnstöflur í fyrirtækjum og stærra húsnæði.

300417

 

AMFE er lítið og nett slökkvitæki sem virkjast við 70°C og hentar fyrir flestar gerðir af rafmagnstöflum. Það fæst í tveimur stærðum, 24 ml fyrir heimili og 70 ml sem er hentugt fyrir rafmagnstöflur í fyrirtækjum og stærra húsnæði.

 

 

 

Bolti – slfvirkt slökkvitæki sem virkjast við 70°C

bolti

Bolti er nýstárlegt, sjálfvirkt slökkvitæki í kúluformi. Það inniheldur 1,3 kg af þurru ABC90% slökkvidufti, virkjast við 70 gráðu hitastig og nýtist þannig til að slökkva eld á fyrstu stigum. Slökkvitækið er létt og einfalt í notkun þannig að jafnvel börn og aldraðir geta handleikið það mjög auðveldlega ef eldur kviknar. Tækið virkjast annað hvort sjálfvirkt við 70°C, sett upp á sérstakar festingar nálægt þeim búnaði sem því er ætlað að verja, eða notandi þess kastar því á eldinn án þess að þurfa að nálgast hann um of.

 

Þessa vöru er hægt að nota til að vernda rafmagnsskápa, netþjóna, eldfim efni, hylki með efnavökva, eldsneyti og áhættusvæði almennt til að slökkva eld um leið og hann brýst út. Við virkjun gefur tækið frá sér hljóð sem virkar sem viðvörun um að eldur hafi kviknað.

 Vantar þig ráðgjöf varðandi eldvarnir fyrir þitt heimili ?  Heyrðu í okkur í síma 5684800 eða oger@oger.is

 logo