Holmatro CORE tæknin

Hér er lýsing á CORE tækninni frá Holmatro.


Bylting í nýjum björgunartækjum frá Holmatro. 
Uppfærsla á eldri gerðum.


New_4000Mutter.jpg (17403 bytes)
Nýr miðjubolti í klippum


New_4000Lights.jpg (17701 bytes)
Handfang með ljósum


New_4000Speed.jpg (6364 bytes)
Innbyggður hröðunarloki


New_4000.jpg (25696 bytes)
Meira afl en minni þyngd


Core-system.jpg (8275 bytes)
CORE einnar slöngu tækni

CORE er nafnið á nýja einnar slöngu kerfinu frá Holmatro, en það er alger bylting í allri vinnu og öryggi við notkun á björgunartækjum. Og ein merkasta nýjungin frá því farið var að framleiða vökvaknúin tæki. CORE tæknin byggir á að í stað hefðbundinna slanga þar sem önnur var notuð fyrir þrýsting að tæki og hin frá, er komin ein slanga.  Slanga þar sem þrýstislanga er inní annarri sem nýtist fyrir vökva frá tæki til dælu.
Í stað 4 tengja á hefðbundinni slöngu eru bara 2 tengi á CORE. Innri slangan sem er þrýstislanga er úr kevlar efni og þolir 4 x vinnuþrýsting er því í raun varin af ytri slöngunni, en þar getur mest byggst upp 25 bar þrýstingur. Þetta er því í raun mun öruggara kerfi, því á hefðbundnar slöngur getur komið gat. Lítið nálargat getur orðið til þess að vökvi getur sprautast með 720 kg þrýstingi í hendi eða handlegg björgunarmanns. Slíkt hefur gerst með hörmulegum afleiðingum. 

 


Core_page1_connecting1.jpg (12658 bytes)

Tengin í CORE kerfinu eru meira en bara tengi, því þau virka líka sem framhjáhlaupslokar, þannig að vökvinn er sífellt á hringrás frá dælu um slönguna ef tæki er ekki tengt. Um leið og tæki er tengt lokast fyrir hringrásina og vökvaaflið er strax komið í tækið.


Core_regularmano.gif (8717 bytes)

Core_weegschaal.jpg (13649 bytes)

CORE slangan er 40% léttari en hefðbundin og vegna þess hversu auðvelt er að tengja hana og einnig að einungis þarf að tengja 2 tengi í stað 4 áður verður mun fljótvirkara og auðveldara að tengja og gera "klárt". Tímasparnaður er ca 50%
 


Gamlí tíminn


Nýi tíminn

 


50% fljótlegra að gera "klárt"


Fljótlegra að ganga frá

 
Snúningsliður er á báðum endum slöngunnar og því nóg að toga í hana til að taka snúning af henni. Eins skiptir ekki máli þó hnútar myndist og brotið sé upp á eða kröpp sveigja myndist á slöngu.

 
Að auki þá fer minna fyrir tækjum, því ekki eru slönguendar sem taka pláss í skápnum.


Gamlí tíminn


Nýi tíminn

 
Eins og komið hefur fram er tengin í CORE kerfinu eru meira en bara tengi, því þau virka líka sem framhjáhlaupslokar, þannig að vökvinn er sífellt á hringrás frá dælu um slönguna ef tæki er ekki tengt. Um leið og tæki er tengt lokast fyrir hringrásina og vökvaaflið er strax komið í tækið. Hægt er því að aftengja tæki án þess að slá af afli og eins má framlengja slöngur.




Ekki bara tengi heldur líka framhjáhlaupslokar



Slöngurnar eru fáanlegar í 5,10 og 15m. lengdum og nokkrum litum. Hægt að framlengja

 

Góðu fréttirnar eru, að það er hægt að breyta eldri tækjum fyrir CORE kerfi en þó ekki öllum. Þá er settur nýr endi á handfang, gömlu slöngurnar teknar af og CORE tengi komið fyrir í staðin. Tekur ca 5 mínútur að skipta. Frá okkur fáið þið allar upplýsingar á myndrænuformi og annað það sem til þarf.

 

Hérlendis eru það tæki líklega fyrir 1996 sem ekki er hægt að breyta en það eru tæki sem eru úr 2000 seríunni. Það skal líka litið til þess að þessi tæki eru um leið orðin úrelt til að eiga við ökutæki af nýrri gerðum þar sem styrkur í póstum hefur verið aukinn. Til fróðleiks þá klippir 2000 klippur með 29 tonna afli en nýjar klippur með yfir 94 tonna afli. Lesið frekar um nýjustu tækin á heimasíðu Holmatro.

Hér hafa verið taldir upp helstu kostir kerfisins. Gallinn er…að ef skipt er yfir í CORE þarf að henda gömlu slöngunum en hafa skal í huga að hjá mörgum er kominn tími á að skipta út slöngum og fá nýjar. Allt eftir meðferð og aldri.

Við erum með tilboð á breytistykkjum og slöngum, bæði fyrir tæki og dælur. 

 

Speed valve (hröðunarloki) er nýjung. Hann er innbyggður í tækin og flýtir lokun og opnun þegar ekki er álag á tækinu um 65%. Ekki er hægt að setja þennan loka í eldri tæki. 

 

Handfang með innbyggðum ljósum, Hver kannast ekki við að vera í lítt eða illa upplýstri aðstöðu við klippivinnu ?  Ekki lengur, því nú hefur Holmatro komið með lausnina á því. Því innbyggð ljós eru í handfangi. Tvö sterk díóðuljós sem beinast að vinnusvæðinu eru innbyggð í handfang tækjanna. AA rafhlaða er einnig innbyggð og endist í ca. 6 tíma. Handfang með ljósum er hægt að setja á eldri tæki.

 

 

 

I Bolt er enn ein nýjungin frá Holmatro. Búið er að endurhanna miðjuboltann í klippunum og koma fyrir mun þynnri og fyrirferðarminni bolta. Þessi nýja gerð herðir eingöngu saman klippukjaftana en ekki tjakkarmana líka. Þetta minnkar slit og þvingun í blöðum og auðvitað nýtir afl tækisins allt í klippugetuna en ekki í innbyrðis þvingun. Annar plús, er að klippurnar komast mun betur að við þröngar aðstæður. I Bolt er einungis í nýrri gerðum af klippum og sambyggðum klippum og glennum.

 

 

 

 

New_4000.jpg (25696 bytes)

Einnig er í nýrri gerðum af klippum ný hönnun á blöðum, svokölluð NCTII blöð. Þau eru sérstaklega hönnuð til að klippa pósta eins og eru í nýjum gerðum af bílum. Það er þykka marglaga, gerðum úr styrktum málmi. En eins og allir vita eru gerðar meiri og meiri kröfur um styrkleika bíla. Sem aftur gerir björgunarmönnum óleik, því eldri tæki vinna hreinlega ekki á þessum nýju styrktu bílum né á stærri bílum. Holmatro er í nánu samstarfi með bílaframleiðendum og stöðugt er unnið að þróun björgunar tækjanna og helst það í hendur við þróun og breytingar í bílaiðnaðinum.

 

 

 

Hafið í huga, að það er mikilvægt að gera sér grein fyrir að eldri tæki voru hönnuð fyrir klippi vinnu á þeim tíma. Í dag eru mun sterkari og harðari efni notuð í bílaiðnaðinum og tækin því ekki nægilega aflmikil. Það er nauðsynlegt að yfirfara blöð í klippum og skipta ef sér á þeim. Eins þarf að yfirfara slöngur vel. Notkunartími á slöngum ætti ekki að fara mikið yfir 12 ár. Huga að endurnýjun tækja í samræmi við aflþörf í dag.

 

Það er staðreynd, að bílaeign hefur aukist mikið, umferð hefur stóraukist. Af þeim sökum eru bílslys eðlilega fleiri. Dauðsföllum í bílslysum hefur fækkar. Og er það vegna sterkari bíla. En slösuðum fjölgar. Sem segir okkur að það er meira af slösuðu fólki innilokað í sterkum bílum og þar af leiðandi meira fyrir björgunarmenn að gera. Og þetta er þróun sem heldur áfram. Þetta kallar líka á þjálfaðri björgunarmenn með búnað sem stenst kröfur nútímans.

 

Holmatro hefur verið í fararbroddi við endurhönnun og framleiðslu á sterkari og öruggari björgunartækjum. Mikli áhersla er lögð á kennslu og upplýsingar um hvað ber að varast og hvað þarf að vita áður en hafist er handa við björgun. Bifreiðar í dag eru gjörbreyttar.

 



Efnið er breytt

Þeim atriðum hefur fjölgað sem gæta þarf að eins og loftpúðar eru á mun fleiri stöðum. öryggisbelti og búnaður þeirra, búnaður með þrýstingi og fl. ofl.

 

 

Styrktarbitar eru fleiri og staðsettir í mörgum tilfellum þar sem björgunarmenn vilja helst komast að hinum fórnarlambinu. 

 

Ólafur Gíslason & Co hf. Eldvarnamiðstöðin

 

ÁRATUGI Í ÞJÓNUSTU SLÖKKVILIÐA