Brunavarnir Suðurnesja fá slökkvibifreið

Brunavarnir Suðurnesja fengu Wiss slökkvibifreið í síðustu viku. Við höfum áður selt Brunavörnunum tvær slökkvibifreiðar aðra af Scania gerð en hina af Ford gerð en þær voru smíðaðar í Noregi.

Við óskum Brunavörnum Suðurnesja hjartanlega til hamingju.


Myndasafn


Slökkvibifreiðin er byggð og útbúin af slökkvibifreiðaframleiðandanum Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi.

Wiss slökkvibifreið

Gerð undirvagns : Scania P410NB 4x2 CP28  410 hestöfl Vélin uppfyllir gildandi mengunarstaðla EURO 6 vökvaskiptur gírkassi. Læsing í afturöxli og loftfjaðrir að framan og aftan. Hámarkshraði 130 km/klst. Eldsneytistankur 150 l. Michelin hjólbarðar. Álfelgur. Heilsárshjólbarðar Michelin S+M eru undir bifreiðinni á álfelgum Í bílnum er höfuðrofi sem rýfur allan straum á bílnum ásamt lofttengi svo hægt sé að tengja loftslöngu inn á bílinn til að viðhalda loftþrýstingi á hemlakerfinu á meðan bíllinn er í húsi og rafmagns tengill fyrir hleðslu inn á bílinn. Wiss tengibúnaður þar sem bæði rafmagn og lofttengi er tengt með sleppibúnaði. Sýnir hleðslu. Með fylgir tengill fyrir húsarafmagnið og loft. Nato tengi fyrir tengingu beint við rafgeymi.

Vinstri hlið

Ökumannshús: Tvöfalt CP28, fjórar hurðir. Hús frá framleiðanda undirvagns. Hefðbundnar  Scania innréttingar. Skápur með hillum á milli fram og afturhluta. Í skáp eru innstungur fyrir húsarafmagn, rafstöðvarrafmagn og frá rafstöð og inverter. Öllum miðstöðvum stýrt þaðan. Handföng fyrir farþega í aftursætum. Sjálfvirk opnun á þrepum fyrir afturhurðir. Lýsing fyrir fram og afturhluta sem truflar ekki ökumann í akstri. Allir í öryggisbeltum.

Hjólabil: 4.500mm.

Útblástur: Upp á milli ökumannshúss og yfirbyggingar og til vinstri hliðar með skipti.

Dráttur: Dráttarkrókar eða pinnar að framan og aftan til að draga bifreiðina. Að auki kúla og tenglar 12/24V.

Reykköfunarsæti:  Sæti fyrir þrjá í reykköfunarstólum í afturhluta. Einnig er sérstakur viðurkenndur reykköfunarstóll fyrir farþega í framsæti. Innrétting að öðru leyti stöðluð. Scania (Webast)  miðstöð undir aftursæti ásamt geymslu.

Hægri hlið

Yfirbygging: Yfirbyggingin er úr áli og trefjaplasti. Uppbygging og grind er þá úr áli klædd gataplötum en trefjaplast á köntum og hliðum svo byggingin verði rennilegri. Einnig eru þakhliðar úr plasti.  Þrír skápar á hvorri hlið. Rennihurðir úr áli fyrir skápum ásamt læsanlegri lokunarslá með tveimur skrám. Á bakhlið er stigi til að komast upp á þak. Á þaki eru hlerar til að komast að vatnstanki og froðutanki. Eins eru Baggio rafdrifinn losunarbúnaður fyrir 10 m. þrískiptan stiga í festingum ásamt þakstiga. (NOR BAS). Þrír 3jam. 5“ sogbarkar eru í kassa á þaki.  Skápar eru um 60 sm á dýpt. Yfirbygging samkvæmt staðli EN1846 og að aftan er árekstrarvörn í SAPA í állit. Bakkmyndavél og viðvörunar/leiðbeininga ljósaborð fyrir ofan rennihurð að aftan.

Vatnstankur: 4.000 l. úr trefjaplasti. Mannop, yfirfall og skilrúm. Á tanknum er lögn að dælu 125 mm op með spjaldloka. Einnig er 75 mm lögn í vatnstank frá brunahana. Sú lögn er með sjálfvirkum áfyllingarbúnaði. Storz tengi.

Froðutankur: 100 l. úr trefjaplasti fyrir One Seven. Mannop.

Froðukerfi: Froðukerfi One Seven OS-C2-3900-010B ásamt loftpressu og olíukæli. Hámarksafköst 3.900 l/mín við 8 bar. Íblöndun á eitt úttak, slöngukefli og úðabyssu á þaki. Inntak á froðutank er með Storz 38 kopar tengi. Áfylling á froðutank um lok á þaki eða um kopartengið. Allur One Seven búnaðurinn er í skáp nr. 4 ásamt loftstýrðu slöngukefli. Sérstakt stjórnborð er fyrir One Seven kerfið.

Dæluskápur

Brunadæla: Ruberg Euroline EH40  dæla sem afkastar minnst á lágþrýstingi 4.000 l/min við 10 bar og 3ja m. soghæð. Á háþrýstingi 400 l/mín við 40 bar. Tveggja þrepa úr bronzi. Dælan er búin rafstýrðum gangráð sem tryggir stöðugan þrýsting. Viðvörun við ofhitnun. Sjálfvirk kæling með útrennsli. Loftstýringar á lokum m.a. frá vatnstanki og milli tanks og dælu, aftöppun tanks, á froðubúnaði og slöngukeflum. Allir nauðsynlegir mælar fyrir háþrýsting, lágþrýsting, sog og áfyllingarþrýsting. Vísamælar á skjá sem sýna m.a. snúningshraða dælu og þrýsting. Skrúfaðir lokar á úttökum. Drening á dælukerfi og eins á vatnstanki.Skrúfaðir lokar á úttökum en kúluloki á One Seven úttaki. Drening á dælu og eins á vatnstanki.

Inntök/Úttök: Þrjú 75mm úttök til hliðarskápa með skrúfuðum Storz B75 lokum tvívirkum (AWG) í dæluskáp og eins tvö 52mm C52 úttök í hliðarskápum með skrúfuðumlokum Eitt 75mm úttak með kúluloka (One Seven). Inntak inn á vatnstank í dæluskáp, 75mm með Storz B75 tengi og loka. Sú lögn er með sjálfvirkum áfyllingarbúnaði. Inntök á dælu í dæluskáp tvö 125mm Storz með stýriskrúfuðum spjaldlokum. Eitt 75mm Storz B75 með loka inn á dælu. Úttak á háþrýstislöngukefli. 52mm rör til áfyllingar tanks með dælu og loftloki þar á. 125mm pípulögn frá dælu til tanks.

Háþrýstislöngukefli: Eitt. Staðsett í efri hluta  hliðarskáps með útdraganlegum ramma með stýrikefli. 19 mm. slöngu 90m. langri með Protek háþrýstistút. Rafmótor og annað hvort handvirk eða sjálfvirk upprúllun. Hemlar. Loft til að hreinsa vatn úr slöngu.

Skjáborð Skjáborð
Skjáborð One Seven Skjáborð

 

Stjórnborð dælu: CanBus Skjáir til stýringar dælu, vinnuljósa, ljósamasturs ofl. eru í dæluskáp og eins í ökumannshúsi. Innsetning dælu er í dæluskáp en einnig úr ökumannshúsi. Skjár í ökumannshúsi er af Opus 3 gerð. Viðvörun fyrir vatns og froðutank, ljósamastur eða úðabyssu. Viðvaranir sem sýna hurðir opnar, hleðslutengingu, skápaljós og fl. Grafsysteco  skjárinn í dæluskáp sýnir myndrænt allar upplýsingar sem þörf er á m.a. ástandslýsingar. Flett er milli skjáa á mjög einfaldan hátt, aðgerðarskjár, stöðuskjár, lagnaskjár, ástandsskjár, allt í sama skjánum. Vísamælar fyrir sog, háþrýsting, lágþrýsting og snúning vélar. Margs konar viðvaranir fyrir m.a. olíuþrýsting, vélarhita, aflúttak, loftbólumyndun ofl. Gangráður og hraðastýring dælu. Vinnuljósarofi og skápaljósarofi. Vatns og froðumagn sýnt á grafískan hátt. Neyðarstopprofi. Loftlokar fyrir vatns og froðutank, fyrir tankáfyllingu um dælu (1.700 l/mín) , fyrir að opna vatn að dælu frá tanki, til að opna og loka fyrir slönguhjól og fyrir aftöppun á tanki. Hægt er að forrita ýmsa aðra möguleika m.a. á stýringar á vinnuljósum, skápaljósum, bláum og gulum ljósum, ofl.

Vatns og froðu kaststútur: 80 mm. lögn upp á þak með tilheyrandi festingum fyrir TFT Hurricane RC úðabyssu sem afkastað getur allt að 4.500 l/mín. Ljóskastarar. Byssunni er fjarstýrt með þráðlausri stýringu.

Innrétting yfirbyggingar, pallar og skúffur: Öll gólf í skápum eru gerð úr sléttu ryðfríu stáli en það er mjög auðvelt að halda því hreinu. Veggir skápa eru klæddir með gataplötum til að auðvelda breytingar á innréttingum.. Álprófílar sem eru stillanlegir í hæð eða breidd í skápum fyrir hillur og innréttingar. Ýmsar innréttingar eins og útdraganlegur veggur fyrir björgunartæki, útdraganlegar skúffur niðurfellanlegar, útdraganlegir pallar, útdraganlegar geymslur fyrir slökkvitæki og kúta. Einnig kassar í festingum. Allar innréttingar sem eru útdraganlegar eru læsanlegar með endurskinsmerkingum.

Ljósamastur: Fireco 4 x 50W 24V LED Nordic Type. Loftdrifið mastur og stjórntæki með snúningsmöguleikum. Viðvörun á skjá í ökumannshúsi og dæluskáp. Rofaborð fyrir uppsetningu og snúning upp og niður eða til hliðanna.

Rafall: Endress Rafstöð 6.0 kVA IP54, fest á útdraganlegan pall, með lögn fyrir útblástur. Tengingar eru í innstungur í skápum og ökumannshúsi.

Upphitun: Tvær Webasto miðstöðvar í rýmum með úttök í alla skápa í yfirbyggingu og ein í ökumannshúsi undir bekk. Miðstöðvum stýrt úr ökumannshúsi og hægt að fylgjast með þeim þar á hitamælum.

Ljós yfirbyggingar: LED ljósarennur í öllum skápum sem kvikna þegar þeir eru opnaðir, með gaumljósum í ökumannshúsi sem loga þegar skápur er opinn. Ljósarennurnar eru í einingum og eru þannig staðsettar að góð lýsing er í hverjum skáp. Hægt að kveikja þessi ljós sérstaklega.

Vinnuljós: Allan hringinn. Gefur gott vinnuljós í minnst 1, 5 m. fjarlægð við slæm veðurskilyrði. Rofi í ökumannshúsi og á stjórnborði dælu. Einnig tengt við bakkgír.

Talstöð/Fjarskipti: Tenging og hátalri í dæluskáp. Lagnir ásamt loftnetum fyrir talstöðvar með 12/24V rafspennu eru til staðar. Dulkóðuð Motorola Tetra MTM5400 talstöð.

Útvarp: Scania Útvarp FM/AM ásamt USB tengi.

Forgangsljós og sírena: Öll forgangsljós af Federal gerð. Blá LED ljós í grilli að framan á hliðum, aftan  á hliðum og aftast á þaki. Federal Ljósabar á þaki ökumannshúss með bláum LED ljósum. Eins gult ljós. LED gult ljós aftarlega á þaki. 100W Federal Sírena með míkrafóni. Loftlúður. Bakkviðvörun.

Stigi: 10m. stigi í Baggio rafdrifnum festingum á þaki, þrískiptur. NOR BAS. Ásamt þakstiga.

Sogbarkar og sigti: 3 stk. 3 m. 125 mm hringstyrktir gúmmísogbarkar. 125mm Sigti í festingum á þaki. Þola minnst 8 bara þrýsting Uppfylla Din 14557.

Slöngurekkar: Slöngu rekkar í hliðarskápum fyrir 3”, 20m og 2” eða 1½” 20 m langar slöngur. Einnig hillur fyrir 4“ liggjandi slöngur.

Aukahlutir: Með bifreiðinni fylgdu ýmsar festingar fyrir stúta og tengi, fyrir slökkvitæki með yfirfelldum spennum, teygjubönd ofl. Til að auðvelda ísetningu þess búnaðar sem eftir á að setja í bifreiðina.

Merkingar: Stafir með nafni slökkviliðs og merki slökkviliðs neyðarnúmer o.s.frv. Sjálflýsandi og endurskin. Battenburg merkingar.

Sprautun - Litur: Stuðari, grill, felgur. Bifreiðin og yfirbygging í RAL 3000

Búnaður: Hleðslutengi fyrir rafgeymahleðslu og loft (Wissbox) með sleppibúnaði á ökumannshúsi.

Ökuljós: Auka ökuljós efst á sólskyggni, ásamt ljósarennu á kastarastöng.

Rafmagnsspil: 5 tonna rafmagnsspil með krafttógi í trefjaplasthlíf.

Ljósaviðvörunarskilti: Ljósaviðvörunar og leiðbeiningarskilti á bakhlið fyrir ofan dæluskáp.

 

 Myndasafn