Eins og áður hefur komið fram hjá okkur þá er það er mikilvægt að fylgjast vel með og að gæta þess að allur
búnaður sé viðurkenndur. Búnaður eins og t.d. hjálmar geta verið viðurkenndir samkvæmt EN staðli og uppfyllt að fullu þann
staðal en það þarf ekki endilega að vera sá allra nýjasti.
KZPT hjálmarnir sem við höfum valið að bjóða uppfylla allir EN443:2008 staðalinn. Í Calisia hjálmunum eru trefjaplast og Kevlar
þræðir en í ZS gerðinni eru eingöngu trefjaplast þræðir. ZS gerin er einnig þyngri og stæri um sig. Aðeins er um eina stærð
á höfuðbandi að ræða 54 til 62 sm.
Sú gerð sem við stefnum á að vera með á lager er AK-6/2009 en það er gerð með hlífðargleri. Hin gerðin sem við
þá sérpöntum er AK-10M en sú gerð er með hlífðargleri gulllituðu eða ekki og svo gleraugum að auki en það er sú
gerð sem sést hér á myndum neðst.
Hér fyrir neðan eru myndir af gerð AK-10M en það er gerðin með gulllitað hlífðargler og gleraugu. Að öðru leyti eru þessar
gerðir eins.
Hér má lesa frekar um þessa hjálma.
Hér er mynd frá bás þeirra á Rauða hananum 2010.
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar,
fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....