Holmatro rafhlöðudrifið björgunarsett austur á firði


Við vorum að afgreiða frá okkur Holmatro EVO 3 björgunartækjasett austur á firði til eins viðskiptavinar okkar sem fyrir á nokkur sett af Holmatro tækjum.

Settið er af Holmatro Greenline EVO gerð sem er þriðja kynslóðin af rafhlöðudrifnum björgunartækjum frá Holmatro. Nýjasta línan af litíum rafhlöðum er í tækjunum og einfalt að fylgjast með hleðslu. Rafhlaðan er staðsett ofan á tækjunum svo auðvelt er að skipta um rafhlöðu sé þess þörf. Stýrihandfang er miðjusett og einfalt að vinna með. Tækin eru vatns og veðurvarin eftir IP54 staðli. Greenline Evo tækin vinna allt að 33% hraðar en fyrri gerðir af rafhlöðudrifnum björgunartækjum. Vinnur við allt að -20°C. Rafhlöðudrifnu Holmatro tækin eru jafn öflug og vökvadrifnu Holmatro tækin. Sex díóðuljós í handfangi.

Klippurnar eru af CU5050i EVO gerð Þessi gerð er byltingagerð nýjung en blöðin hallast sem auðveldar aðgengi að póstum og þaki. Auðveldar alla klippivinnu. Klippir með 141,6 tonna afli og opnast í 182 mm. Þyngdin aðeins 20,9 kg. en 21,9 kg. með rafhlöðu. Stærðin er 898x298x268mm.

 Holmatro GCU 5050i EVO klippur
Holmatro GSP5250 EVO glennur  Glennurnar eru af gerðinni GSP5250 EVO en þær opnast um 725 mm með 37,3 tonna afli og klemma með 13,8 tonna afli. Þyngd aðeins 21,1 kg. en með rafhlöðu 22,1 kg.
Tjakkar eru að mestu leyti óbreyttir  Gerðin sem valin var er GRA4331 EVO en opnunarafl hans er 16,4 tonn og togafl 5,1 tonn/350mm. Heildarlengd er 1041mm. en í upphafsstöðu er hann 691mm. Hægt er að fá framlengingar. Þyngd aðeins 19,1 kg. en með rafhlöðum 20,1 kg.  Holmatro GRA4331 EVO tjakkur
 Holmatro BPA litúm hleðslurafhlaða Litíum rafhlöður af gerðinni BPA286 6Ah 28V eru með hverju tæki og eins aukarafhlaða fyrir hvert tæki. Hleðsla tekur um rúma 1 klst. 500 skipti.
Hleðslutækin af gerðinni BCH1 230V/50Hz eru þrjú þ.e. eitt fyrir hvert tæki. Hleður 5 Ah stunda rafhlöðuna á 75 mínútum.  BCH1 Hleðslutæki 230V/50Hz
 BMC1 Beinhleðslutæki Beinhleðslutæki með 2,5 m. langri snúru að straumbreyti og 8 m. langri snúru að tæki


Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum eða viljið skoða kaup sendið á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.