Nýtt fyrir slökkvilið og björgunarsveitir! Duftlensan - Pulverlansen

Hér er ný einföld og fljótleg leið til að slá á eldinn eða jafnvel ráða niðurlögum hans, utan frá með dufti.

 Fyrsti aðili á vettvang getur hæglega notað þetta sem fyrsta viðbragð, halda eldinum í skefjum og tefja útbreiðslu á meðan verið er að koma öðrum slökkvibúnaði fyrir eða bíða eftir frekari aðstoð. 

Með því að nota venjuleg duftslökkvitæki og setja Duftlensuna á þau má slökkva eld í töluvert stóru rými með því að stinga lensunni í gegnum gat (sem borað er t.d. í gluggakarm) og hleypa úr duftkútnum. Lensan sér svo um að dreifa duftinu innandyra og kæfa eldinn. Þetta hefur verið prófað með góðum árangri í Svíþjóð og víðar. 

Fyrsti aðili á vettvang getur hæglega notað þetta sem fyrsta viðbragð á meðan verið er að koma öðrum slökkvibúnaði fyrir. Hægt er að fá hraðtengi á búnaðinn til að skipta fljótt yfir í annan kút ef nota þarf fleiri en einn.

Duftlensan  Duftlensan  Duftlensan

Við höfum mikinn áhuga á þessum búnaði og viljum fá að vita ykkar skoðun á honum. Sendið okkur endilega línu um áhuga ykkar á þessum búnaði. Ef nægur áhugi er fyrir þessu gætum við fengið framleiðandann til að koma og sýna búnaðinn.

Hér er hægt að fá nánari upplýsingar um þennan búnað: https://pulverlansen.se/en/products/

Eins eru hér myndskeið um notkun Duftlensunnar:

https://youtu.be/kMR0ZXw7QSw

https://youtu.be/E02nk5mTSRI

Svo eru ýmsir fróðleiksmolar á Facebook síðunni: https://www.facebook.com/DesignbySmartish/

Vörulýsing

 

Verð án VSK

Duftlensan - Upphaflega lensan með slöngu og tengjum fyrir einn kút.

59.600

Duftlensan - Löng lensa með víðri dreifingu, með slöngu og tengjum fyrir einn kút.

73.500

Duftlensan - Upphaflega lensan eingöngu án slöngu og tengja.

40.800

Duftlensan - Löng lensa eingöngu án slöngu og tengja.

53.700

Hraðtengja sett fyrir einn auka kút [M14x1,5; M16x1,5; G1/4”]

13.800

Slanga með hraðtengi, 1,8m löng

15.600

Nippiltengi fyrir auka kút.

7.200

Auka stút hlíf í sílikoni

800

Auka hraðtengi fyrir slönguna

8.500

Auka O-hringir fyrir stút 2

800

Auka stútur, Upphaflegi eða Víðdreifi tegund

18.600