Þrep og festingar fyrir fellistiga

 

Við erum með þrjár stærðir af þrepum til að stíga út á áður en farið er í stiga. Aðstæður geta verið þannig að það þurfi til. Stærðirnar eru 230mm á dýptina og 250mm eða 500mm eða 750mm á breiddina. Modum Þrep
  Mishæðarfesting   Auka- stillifesting

Ef veggurinn er stallaður, er hægt að setja mishæðarfestingu undir festinguna sem fyrir er á stiganum og stilla fjarlægðina. Stillingarsvið er frá 24mm til 90mm.

Einnig eigum við auka stigafestingar, sé talin þörf á slíkum t.d. vegna lélegrar festu í vegg eða af öðrum ástæðum.

Ef spenna er á stiganum getur það torveldað opnun hans.


Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.