Vekjum athygli á 2ja og 3ja l. léttvatnstækjum


Við erum með úrval af 2ja og 3ja l. léttvatnstækjum á lager frá Ogniochron og Mobiak ásamt því auðvita að vera með 6 l. og 9 l. léttvatnstæki. Aukin sala hefur verið í minni tækjunum. Öll tækin eru með mismunandi mikinn slökkvimátt og eitt þeirra er frostþolið að -30°C

Léttvatnsslökkvitæki eru til í fjórum stærðum 2ja, 3ja, 6 og 9 lítra.
Þau eru á A elda eins og vatnstækin en einnig á B elda. Þau eru sérstaklega öflug á eldfima vökva. Léttvatnið myndar filmu yfir eldmatinn og hindrar að það kvikni í aftur. 2ja l. tækið er einnig á F elda en það er eldur í fitu og martarolíu. Til eru gerðir sem einnig eru á C elda. Léttvatnstæki má nota á rafmagnselda að 1000V í allt að 1s m. fjarlægð en gæta skal sérstakrar varúðar. Tækin eru hlaðin með vatni og léttvatni í ákveðnum hlutföllum. Köfnunarefni er þrýstigjafinn.

Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum eða viljið skoða kaup sendið á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.

Ogniochro 2 l. léttvatnstæki

 

2 lítra Ogniochron ABF 300350 Léttvatnstæki

Afköst 8A 55B 40F m/mæli og veggfestingu.
Vinnuhitastig -30°C til 60°C. Þyngd 4.1 kg.
Stærð 433 x 110 mm. Notkunartími 9 sek.
Með 40 F slökkvieiningar á feitis og matarolíuelda.

 Mobiak 2 l. léttvatnstæki  

2 lítra Mobiak AB 300352 Léttvatnstæki

Afköst 5A 34B m/mæli og bílfestingu.
Vinnuhitastig 5°C til 60°C. Þyngd 4.0 kg.
Stærð 433 x 110 mm. Notkunartími 9 sek.
Leiðbeiningar á íslensku og ensku.

 3 l. léttvatnstæki  

3 lítra Mobiak  AB 300353 Léttvatnstæki

Afköst 13A 113B m/mæli og bílfestingu.
Vinnuhitastig 5°C til 60°C. Þyngd 5.0 kg.
Stærð 446 x 120 mm. Notkunartími 11sek.
Leiðbeiningar á íslensku og ensku.

 6 og 9 l. Starkin Ningbo léttvatnsslökkvitæki  

6 lítra Ningbo AB 300359 Léttvatnstæki

Afköst 21A og 144B m/mæli og veggfestingu.
Þyngd 11,3 kg. Kastlengd 8 m.
Notkunartími 30 sek.

57cm á hæð að efsta punkti á handfangi,
16cm á breidd um kútinn og 21cm á breidd
við útstæða hringinn fyrir slöngustútinn á
plastbotni.

 6 og 9 l. Starkin Ningbo léttvatnsslökkvitæki  

9 lítra Ningbo AB 300362 Léttvatnstæki

Afköst 21A og 183B m/mæli og veggfestingu.
Þyngd 15,5 kg. Kastlengd 8 m.
Notkunartími 43 sek.

 

 Ogniochron 6l. Léttvatnsslökkvitæki  

6 lítra Ogniochron AB 300354 Léttvatnstæki

Afköst 21A og 183B m/mæli og veggfestingu.
Vinnuhitastig 5°C til 60°C. Þyngd 9,7kg.
Notkunartími 15 sek.

 Ogniochron 6l. Léttvatnsslökkvitæki  

9 lítra Ogniochron AB 300365 Léttvatnstæki.

Afköst 27A og 233B m/mæli og veggfestingu.
Þyngd 14 kg. Kastlengd 8 m.
Notkunartími 15 sek.

6 l. léttvatnstæki

6 lítra Mobiak  AB 300355 Léttvatnstæki

Afköst 34A og 233B m/mæli og veggfestingu.
Öflugustu léttvatnstækin sem við erum með.
Slökkvimátturinn nálgast bestu 6 kg. dufttækin.
Þyngd 11 kg.

9 l. léttvatnstæki

9 lítra AB 300364 Mobiak Léttvatnstæki

Afköst 43A og 233B m/mæli og veggfestingu.
Þyngd 14 kg. Öflugustu 9 l. léttvatnstækin
sem við erum með.

 

Við verð og gæðasamanburð skoðið slökkvimátt tækjanna þ.e. hversu mörg
A og B tækin hafa. Því hærri því meiri slökkvimáttur.