
Wiss byggir slökkvibifreiðar á ýmsar gerðir undirvagna eins og Scanía, MAN, Renault, Volvo ofl. Við kynnum nú grunngerð sem smíðuð er á MAN 13 tonna undirvagn en hægt er að fá þessa útfærslu yfirbyggingar á fleiri undirvagnsgerðir. Í myndasafni má sjá fleiri gerðir eins og t.d. Scaníu P360-400-450-500, MAN 18.320 og Volvo FL 4x4. Hægt er að fá aðrar útfærslur á innréttingum en sjást á þessum myndum. Velja má liti á stuðurum, brettum og hurðum.
Wiss slökkvibifreið byggð á MAN TGM 13.290 4x4 undirvagn með 6 manna áhafnarhúsi. Vél er 213 kW (290 hestöfl) EURO 6 og togið er 1150 Nm. Drif 4x4, 8 gíra tvískiptur gírkassi með millikassa, hátt og lágt læsanlegt drif. Á tvöföldu að aftan dekkjastærð 11R22.5 - Goodyear OMNITRAC MSS. Eldsneytistankur er 150 lítrar.
Rafgeymar eru tveir 175 Ah - rafall 100A - 24 V hleðslutengi, samþætt lofthleðslutengi, staðsett vinstra megin í áhafnarhúsi milli dyranna, með ljósi og hljóðmerki um tengingu við utanaðkomandi aflgjafa.
Áhafnarhús er ein eining, fjögurra dyra, 6 sæta, sætaskipan 1+1+4, hallanlegt með handstýrðri vökvadælu og á loftpúðum að aftan. Stigin í áhafnarhúsi eru með lýsingu sem kviknar sjálfkrafa þegar hurðir eru opnaðar, öll sæti eru búin öryggisbeltum og höfuðpúðum. Afturrýmið er með reykköfunartækjafestingum sem gera kleift að setja tækin á sig við akstur. Inni í áhafnarhúsinu er ýmis viðbótarbúnaður m.a. stjórnborð fyrir búnað í yfirbyggingu, merkja- og viðvörunarbúnaður, sjálfstæð lofthitun, talstöð, hreyfanlegur ljósalampi ofl. Fyrir utan áhafnarhúsið er hleðslutengill fyrir rafgeyma sem aftengist sjálfkrafa þegar vélin er ræst, merkja- og viðvörunarbúnaður, hljóð- og ljósabúnaður (ljósarenna) á þaki farþegarýmisins ásamt fjórum bláum ljósum í grilli að framan. Yfirbygging er úr tæringarþolnu efni, álrammar, klæðning úr seltuvörðu áli, frágangshlutar úr trefjaplast efnum. Þrír skápar eru hvoru megin á yfirbyggingu og að aftan er skápur fyrir slökkvidælu.
Inni í yfirbyggingunni eru boltaðar álgrindur stillanlegar til að festa hillur og festingar fyrir búnað. Hliðarklæðning í skápum er úr gataðri seltuvarinni álplötu. Gólf skápanna er klætt með sléttri sýruþolinni málmplötu án þröskulda, sem gerir auðvelt að þrífa skápana. Þak byggingarinnar er vinnupallur, þakinn með hálkuvörn. Aðgangur að þakinu er um stiga sem er staðsettur hægra megin aftan á yfirbyggingu. Í hliðarskápum eru rennihurðir, með lokunarslá sem hægt er að læsa með lykli. Í afturskáp er rennihurð og er henni fyrirkomið í hlera svo velja má hvort hlerinn er opnaður eða rennihurðin. Nemum er komið fyrir í hurðaropum sem kveikja á lýsingu í skápunum við opnun og slökkva við lokun. Á hliðum og aftan á yfirbyggingunni fyrir ofan hurðarnar eru vinnuljós sem lýsa upp svæðið umhverfis. Kveikt er á þeim á stjórnborði við dælu eða í áhafnarhúsi. Blá LED viðvörunarljós eru á hornum að aftan.

Slökkvidælan er staðsett í afturskáp. Skápurinn er hitaður með miðstöð sem verndar vatns- og froðukerfið gegn frosti við hitastig niður í -25°C. Tankur er tveggja hólfa, tankur fyrir vatn og slökkvifroðu, úr trefjaplasti, tankrúmmál, vatn 4000 l, froða 400 l. Vatnstankurinn er búinn mannopi, yfirfallsbúnaði, yfirfallsloka og öldubrjótum. Tankarnir eru búnir rafrænum stigmælum og lokum fyrir fulla tæmingu. Slökkvidælan er af Ruberg gerð úr Euroline seríunni. Dælan er búin innri hitunarrásum, sem gerir kleift að hita frá kælikerfi vélarinnar með möguleika á að slökkva á henni á sumrin (froðuvörn) og tryggir að dælan hitni upp í rétt hitastig við slökkvistarfið. Afköst dælunnar er 2400 l/mín við 8 bara þrýsting og 1,5 m soghæð og 400 l/mín við 40 bara þrýsting, með froðukerfi, með stjórnkerfi sem gerir mögulegt að stilla vinnuþrýstinginn sjálfvirkt og handvirkt og að ná lágmarksblöndun á bilinu 3 til 6%. Allir hlutar vatnsfroðukerfisins eru tæringarþolnir og þola notkun viðurkenndra froðuefna. Uppbygging vatnsfroðukerfisins gerir kleift að skola það og tæma að fullu.
Háþrýst rafdrifið slöngukefli 60 m. búið gírdrifi, stýriramma, hemlum, neyðarsveif og háþrýstislöngu með PROTEK háþrýstistút. Staðsett fyrir ofan dælu. Ljósamastur á þaki, loftdrifið og nær minnsta kosti 5 m. hæð frá jörðu. Veltanlegir ljóskastarar lárétt og lóðrétt, afl uppsettra LED ljósa: 2 x 165 W (ljósflæði að lágmarki 30.000 lúmen), stjórnborð staðsett í hægri framskáp.
Bifreiðin uppfyllir EN 1846-1 og EN 1846-2. 6 Gætt er þess að dreifing massa á milli ása og massi á hvern ás fari ekki fara yfir hámarksgildi sem framleiðandi ökutækisins eða undirvagnsins tilgreinir. Ökutækið er búið merkja- og viðvörunarbúnaði samkvæmt reglum. Blá ljósarenna (LED) staðsett beint á þaki ökumannshúss. Lengd: u.þ.b. 1680 mm. Fjöldi eininga 4+4. Fjögur blá LED ljós á vélarhlíf ökutækisins. Sex blá LED ljós á hliðum. Að aftan eru blá LED hornljós innbyggð í útlínur byggingarinnar
Sírena 24V, afl 200W, 4 merki og lúður. Fjarstýring staðsett efst, fyrir ofan framrúðu, innan seilingar ökumanns og stjórnanda. Að auki, fyrir ofan framrúðu í miðhlutanum er upplýsinga- og stjórnborð með skjá sem sýnir helstu aðgerðir og viðvarnir ásamt talstöð. Ökutækið er merkt í samræmi við óskir og reglur.
Hámarksstærð ökutækis er lengd u.þ.b. 8000 mm - breidd 2550 mm - hæð u.þ.b. 3170 mm Hámarkshæð efri brúnar efstu hillu í vinnustöðu (þegar hún er útdregin eða felld út) eða skúffu er ekki hærri en 1850 mm frá jarðhæð eða þjónustuhæð. Aðgangur að búnaði sem staðsettur er fyrir ofan er auðveldaður með uppsetningu ástigspalla með viðvörunarnemum í ökumannshúsi. Opnun/lokun palla er gerð auðveldari með gasdempurum. Pallarnir eru tryggðir með viðbótarlæsingum gegn óæskilegri opnun ef stýribúnaður bilar.
Drif 4x4 8 gíra tvískiptur gírkassi með millikassa, hátt og lágt læsanlegt drif. Fjaðrir á framás og loftfjöðrun á afturás. Beinskiptur gírkassi. 8 gírar áfram. Fjögurra dyra áhafnarhús byggt á einni gólfplötu. 6 sæta, sætaskipan 1+1+4 (sæti snúa í akstursátt). Áhafnarhús er búið lýsingu fyrir ofan sæti stjórnanda, loftkælingu, sjálfstæðu hita- og loftræstikerfi, sem gerir kleift að hita áhafnarhúsið þó vél sé ekki í gangi. Hliðarrúður (framan) rafknúnar og rafknúnir hliðarspeglar Útvarp með hátalara frá verksmiðju undirvagnsframleiðanda.

Stjórnborð í ökumannshúsi er með LCD skjá að lágmarki. 4" búin eftirfarandi eiginleikum: * Kveikja á aflúttakinu (PTO) fyrir dælu * Opna/loka aðaltankloka * Opna/loka undirvagnsúðurum * Kveikja/slökkva á vinnulýsingu * Kveikja/slökkva á skápaljósum * Gangráður fyrir dælu * Viðvörun um að skápar séu opnir og pallar séu niðri ásamt upplýsingum um hvaða skápar eru opnir * Viðvörun um stöðu raf/lofthleðslutengils * Viðvörun um stöðu ljósamasturs * Viðvörun um að þakstigi sé útfelldur * Viðvörun um að búnaðarkassi á þaki sé opinn * Upplýsingar um að slökkvidæla sé tengd * Upplýsingar um dæluhraða * Upplýsingar um vatns- og froðumagn * Upplýsingar um vinnuþrýsting.
Sætin eru búin öryggisbeltum. Klædd með auðþvegnu efni, slitþolnu. Öll sæti eru búin höfuðpúðum. Ökumannssæti er með hæðar-, fjarlægðar- og bakstuðningsstillingu, auk þess loftfjaðrað. Aftursætin útbúin með fjórum reykköfunarfestingum í baki, gerðar fyrir mismunandi gerðir reykköfunartækja. Hvert festing með sérstakan opnunarbúnað og öryggi sem kemur í veg fyrir að opnist ef óvart er komið við opnunarbúnaðinn t.d. þegar ökutækið er að hemla.
Rafmagn 24V, afl rafals og afkastageta rafgeyma tryggja nægt rafmagn við hámarksálag. 24V / 12V spennubreytir. Aðalrofi aftengir ekki þau tæki og búnað sem þurfa stöðuga aflgjafa (t.d. rafgeyma, hleðslutæki og talstöðvar). Ökutækið er búið innbyggðu jafnriðlakerfi til að hlaða rafgeyma frá utanaðkomandi aflgjafa með spennu upp á ~ 230 V og innbyggðu tengi (innstunga með kló) fyrir rafstraum með spennu upp á ~ 230 V og þrýstiloft til að bæta við loftkerfi bílsins frá loftdælu, sem aftengist sjálfkrafa við ræsingu og er staðsett vinstra megin á ökutækinu (í ökumannshúsi er viðvörunarljós- og hljóðmerki um tengingu við utanaðkomandi gjafa). Kló með rafmagns- og loftsnúru að lágmarki 10 m. Motorola DM4600 talstöð er sett upp í ökumannshúsinu.
Aukahátalari með hljóðnema sem vinnur með talstöðinni er í dælurými, sem gerir kleift að eiga samskipti frá dælurými í ökumannshús. Ökutækið er búið ljós- og hljóðmerkjabúnaði (hljóðmerki - slitrótt merki) þegar sett er í bakkgír. Bakkljósið er notað sem ljósmerki. Hljóðviðvörunarmerki er að lágmarki 80 dB. Bakkmyndavél sem fylgist með blindsvæðinu (sem ökumaðurinn sér ekki) er að aftan á ökutækinu. Aðlöguð að notkun í flest öllum veðurskilyrðum. Mynd frá myndavélinni birtist á viðbótarskjá með skjáhornsstærð 7“. Myndavélin virkjast sjálfkrafa þegar sett er í bakkgír. Að auki er myndavélarrofinn innan seilingar ökumanns, sem gerir kleift að virkja hann hvenær sem er.
Hæð frá jörðu ekki minni en 300 mm. Lágmarkshæð frá jörðu undir öxlum ekki minni en 250 mm. Aðkomu- og frávikshorn ekki minna en 23°. Uundirvagnshlutar svartir eða dökkgrárir (verksmiðjulitur undirvagnshluta). Fram- og afturstuðarar hvítir. Innanhúss, yfirbygging RAL 3000. Rennihurðir fyrir skápum í állitum. Undirvagn varinn gegn tæringu. Minnsti beygjuhringur er ekki meiri en 18 m. Hámarkshraði í efsta gír er ekki minni en 89 km/klst. Þyngdarforði er reiknaður sem mismunurinn á tæknilega leyfilegri hámarksheildarþyngd sem framleiðandi undirvagnsins tilgreinir og raunverulegri heildarþyngd ökutækisins og er ekki minni en 3%. Loftkerfi ökutækisins tryggir að hægt er að keyra af stað innan 60 sekúndna frá því að vél er ræst og um leið eru hemlar virkir. Útblástur ökutækisins er vinstra megin á ökutækinu á milli öxlanna staðsettur frá öllum búnaði. Allar aðgerðir allra kerfa og tækja ökutækisins halda rekstrareiginleikum sínum við hitastig frá -25°C til +50°C. Hægt er að sinna almennu viðhaldi vélar án þess að lyfta ökumannshúsi. Eldsneytistankur rúmar (150 lítra) fyrir að lágmarki 300 km eða 4 klst. samfellda notkun dælunnar. Vél ökutækisins er hönnuð fyrir samfellda notkun, án þess að fylla á kælivökva eða olíur og fara yfir leyfilegar rekstrarbreytur (t.d. hitastig) við kyrrstöðu, að lágmarki 4 klst. Alhliða hjólbarðar með slitlagi sem er aðlagað að akstri á vegi í öllum veðurskilyrðum sem og utan vega.

Hjólbarðar eru með burðargetu sem er aðlöguð að álagi og hámarkshraða ökutækisins. Ráðlagður loftþrýstingur í hjólbörðum fyrir akstur er merktur varanlega fyrir ofan hjólbarða. Varahjólbarði er í fullri stærð. Ökutækið er búið dráttarbúnaði með rafmagns- og lofttengingu. Viðurkenndur dráttarbúnaður fyrir eftirvagna með hámarksþyngd að lágmarki 10 tonn. Að auki er ökutækið búið lásum að framan og aftan, sem gerir kleift að draga ökutækið. Ökutækið er búið rafdrifnu spili sem er fest framan á ökutækinu, með togkraft að lágmarki 8 tonnum og 25 m. löngu dráttartógi. Spilið er búið stjórnbúnaði, stýrirúllum og hlífðarhúsi. Aflúttak er aðlagað fyrir langa vinnu og viðvörunarljós um virkjun í stjórnborði í ökumannshúsi. Diskabremsur á báðum öxlum. ABS hemlakerfi. Útispeglar eru rafhitaðir.
Yfirbyggingin er eingöngu úr tæringarþolnum efnum. Burðagrind er skrúfuð úr álprófílum með stálfestingum. Klæðningar eru úr álplötu. Undirgrind yfirbyggingar er úr burðarstáli, í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda undirvagnsins, þverslá fest við hliðarhluta með boltum. Gólf skápanna eru frágengin með sléttri sýruþolinni málmplötu án þröskulda, með halla sem leyfir vatni að renna út. Hillur í skápum festar við prófíla, án þess að nota þurfi viðbótarprófíla (grind fyrir hillur) og eru með möguleika á hæðarstillingu. Hillur eru úr sléttri álplötu. Efsti hluti yfirbyggingar er úr áli og hitamótuðu plasti sem hluti af grindverki. Hæð hliðargrindverks byggingarinnar er að lágmarki 350 mm frá þakfleti. Afturhluti byggingarinnar við frávikshorn er frágenginn með sléttri málmplötu sem er varin gegn tæringu. Þak byggingarinnar er vinnupallur með hálkuvörn. Brúnir þaksins eru varðar af yfirbyggingu sem er samþætt yfirbyggingunni, með vinnuljósunum. Stigi staðsettur aftan á ökutækinu er fyrir aðgang að þaki og er með handriði í efri hluta yfirbyggingarinnar til að auðvelda aðgang að þakinu , hægra megin. Þrep eru með hálkuvörn. Skáparnir fyrir búnað og tæki eru lokaðir með vatns- og rykþéttum rennihurðum með fjöðrunarbúnaði, eru úr tæringarþolnu efni, búnir læsanlegum skrám og einn lykill passar í allar skrár. Í ökumannshúsi er viðvörunarljós um opnun skápanna. Eins ef þakstigi er opinn og skápar og pallar niðri. Dýpt allra geymsluskápa er lágmark 550 mm.
Skáparnir fyrir búnað og slökkvidæluskápinn eru með lýsingu sem kviknar sjálfkrafa eftir að rennihurðir skápanna eru opnaðar, lýsingin er með LED-tækni. Búnaði í skápana er hægt að koma fyrir eftir tilgangi og vinnuvistfræði. Rennihurðir opnast upp í kefli. Vinnuljós á ökutækinu lýsa upp vinnusvæðið í kringum ökutækið og tryggir lýsingu við lélegt skyggni, að lágmarki 5 lux í 1 m. fjarlægð frá ökutækinu á jörðu niðri. Lýsingu má kveikja og slökkva í ökumannshúsi og við dælu. LED vinnusvæðisljós eru 12-24V og að lágmarki 1750 lm hvert. Skúffur og útdraganlegir bakkar læsast sjálfkrafa í lokaðri og alveg opinni stöðu og eru varin gegn því að vera dregin alveg út úr stýringum. Skúffur og bakkar sem standa út fyrir 250 mm frá útlínum ökutækisins í opinni stöðu eru með viðvörunarmerkingum. Allur opnunar og lokunarbúnaður eins og hurðum, skúffum og bökkum er hönnaður þannig að hægt sé að sinna hanskaklæddur. Hönnun skápanna tryggir frárennsli vatns úr þeim. Eins á yfirborið palla, vinnupalls og gólfs í farþegarými. Vatnstankur er 4 m3 (±3%) að rúmmáli úr samsettum trefjaplastefnum. Tankurinn er búinn mælitækjum sem sýna vatnsstöðu og eru varin gegn hreyfingu vatns við akstur. Tankurinn er búinn öldubrjótum og skoðunarhlera. Tankurinn er festur beint við undirvagnsgrindina með sérstökum boltum. Froðutankur er með rúmmál að lágmarki 10% af vatnstanksrúmmáli og 20 bara prófunaryfirþrýsting, Úr samsettum trefjaplastefni sem þolir viðurkenndar slökkvifroður. Tankurinn er búinn mælitækjum sem sýna stöðu slökkviefna og eru varin gegn hreyfingu efna við akstur. Sambyggður vatnstanknum. Áfylling slökkvifroðu úr dælurými og af þaki ökutækisins. Slökkvidælan er í dæluskáp að aftan með upphitun og lýsingu. Dælan er fest við undirvagnsgrind ökutækisins. Dælan er varin frá hlið stjórnborðs ásamt að framan og undir með loki úr álplötu. Stjórnborð ver dælu að framan en þar eru rofar og mælar uppsettir. Ruberg AB tvíþrepa slökkvidæla með afkastagetu að lágmarki 2400 l/mín. við 8 bara þrýsting og 1,5 m. soghæð og 400 l/mín. við 40 bara þrýsting.
Sjálfvirk slökkvidæla sem skilar slökkviefni samtímis við lágan og háan þrýsting. Vatnsfroðublöndunin vinnur þannig að breytur sjálfvirku dælunnar, þegar hún er fædd af tanki bílsins, eru ekki lægri en þegar hún er fædd úr utanaðkomandi tanki og soghæð 1,5 m. Eitt háþrýstislöngukefli með 60 m. háþrýstislöngu ásamt vatnsfroðustút með stillanlegri afkastagetu og sem veitir þéttan og dreifðan úða. Keflið er búið leiðarúllum sem eru festar á hreyfanlegan arm sem gerir kleift að losa og læsa hjólbremsunni. Með háþrýstislöngunni er hægt að dæla vatni eða froðu óháð því hversu löng útdregin slangan er. Slöngukeflið er búið bremsu, rafdrifi og sveifarás til að spóla inn aftur. Möguleiki á að tæma slöngu með lofti. Dælan skilar vatni og froðuvatnslausn í öll úttök þ.e. í sitthvort 2 ½“úttakið sem er hægra og vinstra megin að aftan, háþrýstislöngukeflið, þakúðabyssu og undirvagnsúðastúta. Mögulegt að dæla vatni um dælu beint í tank. Sogdæla afkastar frá 1,5 m. soghæð á 30 sek. Og frá 7,5 m. soghæði á 60 sek. Á stjórnborði dælunnar er eftirfarandi skipunarrofar og mælar. Ræsa/stöðva vélina - snúningshraði vélarinnar – kveikja/slökkva á aflúttakinu (PTO) fyrir dælu - opna/loka aðaltanklokanum - opna/loka sjálfvirka áfyllingarlokanum – þrýstingsgangráður – tæming vatnsfroðukerfisins – tæming vatnstanks – Áfylling – Skolun dælu - % stilling froðuefnis - kveikja/slökkva á lýsingu í skápum - kveikja/slökkva á lýsingu vinnuljósum. Að auki eru eftirfarandi upplýsingar og viðvörunarljós: - vatnshitastig í dælunni - kælivökvahitastig vélarinnar - olíuþrýstingur - lágt eldsneytismagn - loftbólumyndun - lág rafgeymaspenna.

Hnappur til að auka og minnka þrýsting dælunnar og til að kveikja á sjálfvirkum þrýstijafnara (gangráð). Stjórnborðið er með skýringarmyndir af vatnsfroðukerfinu og merkingum á lokum. Allur eftirlits- og stjórnbúnaður er sýnilegur og aðgengilegur frá dæluskáp.Öll stjórn- og eftirlitstæki eru merkt með stöðluðum táknum (myndtáknum) eða upplýsingaplötu ef táknið er ekki til staðar. Handföng og hnappar allra loka, þar með talið úttaka, eru aðgengileg og hægt að stjórna þeim án þess að fara undir bílinn. Vatnstankur er búinn tveimur inntökum 75 mm. Einu hvoru megin til áfyllingar úr t.d. brunahana (áfyllingarinntökin eru einstreymislokar) og sjálfvirkum loka sem verndar gegn offyllingu tanksins með möguleika á að skipta yfir í handvirka áfyllingu. Froðumyndunarbúnaður með styrk að lágmarki 3 og 6%, sem er aðlagaður að afkastagetu dælunnar. Dælan er búin stjórnbúnaði sem gerir kleift að stilla vinnuþrýstinginn sjálfvirkt og handvirkt. Allir hlutar vatnsfroðukerfisins eru tæringarþolnir og ónæmir fyrir áhrifum viðurkenndra slökkvifroða. Uppbygging vatnsfroðukerfisins gerir kleift að tæma það að fullu með því að nota ekki fleiri en tvo loka. Dælurýmið er búið hitakerfi frá sama framleiðanda og tækið í ökumannshúsi, sem verndar vatns- og froðukerfið á áhrifaríkan hátt gegn frosti við hitastig allt að -25°C og starfar óháð gangi vélarinnar. Að auki er dæla slökkvibílsins búin innri hitunarrásum, sem gera kleift að hita upp frá kælikerfi vélarinnar, með möguleika á að slökkva á henni á sumrin (afþýðingarvörn) og tryggja að dælan hitni upp í rétt hitastig fyrir notkun. Við soginntak dælunnar er sigti til að koma í veg fyrir að föst óhreinindi komist inn í dæluna, bæði þegar sogað er úr utanaðkomandi tanki og úr vatnstanki, sem tryggir örugga notkun dælunnar. Á þaki yfirbyggingar aftarlega er DWP32 úðabyssa með stillanlegum afköstum upp á 800÷3200 l/mín. Snúningssvið í láréttu plani er 360°, og í lóðréttu plani - frá neikvæðu horni sem takmarkast af útlínum ökutækisins að minnsta kosti 65°. Hámarkskastlengd er ekki minni en 50 m.
Ljósmastur með lágmarkshæð 5 m, frá jörðu og með möguleika á að snúa 170º til beggja hliða og halla ljósunum frá jörðu niðri. Mastrið loftknúið og útdraganlegt með LED ljósum með ljósflæði 30.000 lm. Sem er knúið af rafkerfi bílsins. Viðvörunarljós og hljóðmerki í ökumannshúsi ef ef mastur er uppi og ekið er af stað. Festingar fyrir uppsetningu búnaðar fylgja. Láréttar útdraganlegar skúffur og lóðréttir útdraganlegir veggir fyrir verkfæri. Verkfærakassi er á þaki. Plastkassar fyrir minni búnað. Á þakinu er staður og handföng fyrir uppsetningu stiga. Fjórir undirvagns úðastútar sem er stjórnað úr ökumannshúsi. Tveir úðarar fyrir framan og tveir á milli hjóla ökutækisins.
Stærð (u.þ.b.) Lengd Breidd Hæð ~8000 2550 ~3170mm
Leyfileg heildarþyngd 15500 kg
Raunveruleg heildarþyngd ökutækisins 14000 kg
Afgangsmassi 10 %
Hafið samband við sölumenn okkar í síma 568-4800 eða gegnum netfangið oger@oger.is ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum.
