Hjól- og keðjusagir fyrir slökkvilið og björgunarsveitir


Cutters  Edge hjólsagir og Truckman's Choice keðjusagir en Truckman's Choice keðjusagir eru sömu gerðar og Cutters Edge sagirnar sem við höfum boðið um árabil. Eins og við upplýstum um fyrir nokkru varð Cutters Edge gjaldþrota en nú hefur nýr aðili tekið við framleiðslu og útvegun varahluta Truckman's Choice.

Nú loksins eru fáanlegar hjá okkur  Cutters  Edge hjólsagir og Truckman's Choice keðjusagir. 7100 TC Series Fire Rescue Chainsaw og 9000TC Series Fire Rescue Chainsaw. Þessar sagir eru eins og þær sagir sem við höfum selt og þjónustað með varahluti til slökkviliða hér í yfir 20 ár.

Sagirnar eru sérstaklega gerðar fyrir slökkvilið og björgunarsveitir og sérstaklega áreiðanlegar við slæmar aðstæður. Þær eru fáanlegar í nokkrum úrfærslum. Hér er hlekkur á upplýsingabæklinga 

CUTTERS EDGE HJÓLSAGIR

Cutters Edge hjólsagir

 Cutters Edge Multi-Cut H gerðir (hjólsagir) eru fáanlegar af nokkrum stærðum og gerðum og mismunandi búnaði. Helstar eru sagir með 12", 14" og 16" blöðum en blöðin eru með mismunandi hörku. Sérstakt eldneytiskerfi X-TORQ eykur orku og afköst vélarinnar

 

 

TRUCKMAN'S CHOICE

Truckmans Choice keðjudagir

Truckman's Choice keðjusagir. 7100 TC Series. Keðjan er með varnarhlíf stillanlega til að stilla dýpt þess sem saga á og verja notanda. Sögunardýptin er rúmir 15 sm. eða 20 sm. Stýring úr heilu stáli sem stýrir sögun á sem skemmstum tíma. Hemill er á keðju sem stöðvar keðjuna á 1/20 úr sekúndu. Verði hún fyrir höggum stöðvast keðjan. Stillanlegt. Loftsíun er fjögurra þrepa svo vinna megi með sögina við verstu aðstæður í reyk og sóti. Allt viðhald er einfalt og eftirlit er auðvelt og auðvelt að komast að. Auðvelt að setja í gang. Rofi alltaf á ON til að koma í veg fyrir að blöndungur yfirfyllist. Innsog einfalt og stillist fast strax.  Tankar fyrir smurolíur fyrir keðju og vél eru hafðir það stórir svo koma megi í veg fyrir að sögin sé keyrð þurr. Fyrr verður hún eldsneytislaus. Handfang stamt og sérstök vörn frá sagi eða spænum til hlífðar notanda og vél. Hægt er að létta á vél til að auðvelda gangsetningu. Í handfangi eru demparar til að draga úr höggum. Vélin er rúm 6 hestöfl; eins strokka tvígengis vél. Þyngd um 10 kg fullbúin.

Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum um sagirnar sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.