Vorum að afgreiða frá okkur Scott Propak F reykköfunartæki


Vorum að afgreiða frá okkur þó nokkur Scott Propak reykköfunartæki og eigum væntanleg fleiri sem eru seld.. Scott Propak eru nánast eina gerðin sem við höfum flutt inn og selt af Scott reykköfunartækjum. Þessi tæki eru víðsvegar um landið m.a. á flugvöllum. Vönduð tæki á góðu verði. Mikil fjölbreytni í tengimöguleikum í fjarskiptum. Scott Propak tækin eru fáanleg af þremur aðal gerðum þ.e. Propak, Propak F og Propak Fx. Fyrir slökkviliðin höfum við tekið F og Fx.

SCOTT PROPAK Reykköfunartæki.

Við bjóðum allar gerðir Scott Propak með 46 mín léttkútum 300 bar með Vision 3 maska. Fleiri möguleikar. Tækin eru eins og áður sagði vönduð með Kelvar tregbrennanlegum ólum. Kútarnir eru léttkútar með 1.860 l. af lofti og vega aðeins 6,8 kg. fullhlaðnir. Þvermál 160 mm og 600 mm. langir. Líftími minnst 15 ár. Scott Propak tækin eru með Vision 3 maska og sá maski eru um margt mjög einstakur þar sem glerið er mjög kúpt og eykur útsýni miðað við aðrar venjulegar gerðir af möskum. Hægt er að fá aðrar gerðir og bendum við á síðuna um maska.

Fjarskiptatengingar eru ekki vandamál. Mjög einfalt Sabre Com kerfi. Festing í maska og í fjarskiptabúnað. Sjá síðu um fjarskipti.

Scott Propak

Scott Propak reykköfunartækin eru byggð upp af Scott og Sabre Contour og eru með léttustu og öruggustu reykköfunartækjum sem völ er á. Þau eru viðurkennd samkvæmt  EN137: 2006 class II, ásamt því að vera prófuð við sérstakar hita og loga prófun (incorporating the stringent flame engulfment test). Viðurkennt lunga, tryggt loftflæði, 100% Kelvar vefnaður, fallhlífar sylgjur, ný gerð stillingarbands á loftkút og auðveld endurnýjun. Létt afrafmögnuð bakplata með Kelvar kútabandi (auðveld skipti á kútum) og stillanlegum fóðruðum ólum. Tvöfalt kerfi með framhjáhlaupi, mælir og 55 bara flauta. Ýmsar tengingar á lofti. Bakplata stillanleg fyrir aðrar stærðir af kútum. 

 

Fróðleikur um viðhald og meðferð Scott Propak tækja.


Spurningar og svör

Notkunarleiðbeiningar

 

 Ef þið hafið áhuga að panta eða frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.