Undanfarna viku hefur undirbúningur farið fram við að koma upp búnaði og kenna verkreglur við notkun á Titan 7000 við jarðgangasprengingar Ólafsfjarðarmegin.
Í dag afhentum við það sem eftir átti að afhenda af hlífðarfatnaði til útgerðarfyrirtækisins Þorbjarnar hf.
í Grindavík. Þorbjörn hf. er fyrsta fyrirtækið sem kaupir um boð í skip sín Weenas Pbi Kelvar
hlífðarfatnað en það er sá hlífðarfatnaður sem m.a. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins notar.
Frá Rapid Deployment getum við boðið takmarkað magn af bakbrettum af gerðinni RED 716 PRO-LIITE. Þessi bretti eru rauð að
lit og hægt að fá með og án pinna fyrir ólar.
Við erum í Bielsko Biala að skoða slökkvibifreiðar og m.a. þá sem er væntanleg til landsins næst fyrir Brunavarnir á Héraði og
Flugmálastjórn fyrir Egilsstaðaflugvöll.
Kennd var tjöldun í síðustu viku á Slökkvistöðinni í Hafnarfirði og komu leiðbeinendur frá Trelleborg í
Svíþjóð en það voru þeir Thomas Gilbert og Christer Fritze.
Nánast allir sprengiefnaviðskiptavinir okkar nota Nonel kveikjur. Á síðustu árum hefur notkun á rafmagnskveikjum dregist verulega saman og það svo að við erum í dag aðeins með lágmarksmagn á lager.