Fleiri teikningar af slökkvibifreiðum
29.09.2005
Við bætum enn inn á síðuna okkar fleiri teikningum af slökkvibifreiðum. Sjá síðuna.
Við viljum kynna Renault Mascott 160.6 sem er létt og öflug slökkvi- og björgunarbifreið sem getur verið með 1.000
l. af vatni og 100 l. af slökkvifroðu. Ökumannshús er tvöfalt fyrir 1 + 1 + 4. Renault Mascott slökkvi- og björgunarbifreiðar eru á undirvagni þar
sem heildarþungi er allt að 6 tonnum. Vélarstærðir eru frá 120 hö (270 Nm/1300 sn.) til 160 hö (350 Nm/1500 sn.) og gírkassar at tveimur
stærðum 5 eða 6 gíra. Tvær gerðir af Ruberg brunadælum eru fáanlegar beintengdar í þessar bifreiðar. Annars vegar R2-40 sem afkastar 250
l/mín við 40 bar og hins vegar R12 sem afkastar 1.200 l/mín við 10 bar. Aðrir undirvagnar koma til greina eins og MB Sprinter eða Iveco.
Lesa meira