Nýir kolsýrlingsskynjarar - Lækkað verð

Mikið hefur verið spurt um kolsýrlingsskynjara hjá okkur að undanförnu og við höfum svarað þessari eftirspurn með tveim nýjum tegundum.

Fyrri gerðin sem nefnd er kom á lager núna í dag en hin er væntanleg öðru hvoru megin við helgina.

Gabel 2588 kolsýrlingsskynjari

305204 Gabel 2588 Kolsýrlingsskynjari gengur fyrir 9V rafhlöðukubb. Skynjun er stillt við 150+/-50ppm af kolmónoxíði. Straumnotkun <20 mA við skynjun. Vinnuhitastig 4°C til 38°C. Sjálfsprófun og lætur vita ef hann virkar ekki eða ef rafhlaðan er að klárast. 85db viðvörunarhljóð. Ekki hægt að festa án rafhlöðukubbsins. Rafhlaða fylgir ekki.

CE Vottun TÜV Vottun

 

 

Ei207 kolsýrlingsskynjari

305202 EI207 Kolsýrlingsskynjari m/minni, sjálfsprófun og prófunarhnapp ásamt gaumljósum. Rafhlöður 2 x AAA 1,5V.

Leiðbeiningar Bæklingur

 

 

......Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki......


.