Seagull hvít stjórnandavesti


Við vorum að afgreiða frá okkur nokkur hvít stjórnandavesti frá Seagull. Við buðum á árinu stjórnandavesti frá Condor og tóku nokkur slökkvilið slík vesti í hvítu, rauðu og grænu. Eins valdi lögregla og sjúkralið slík vesti. Vestin eru með endurskini Battenburgarmynstri. Vel búin af vösum og hægt að fá ýmsa áprentun. Öll þau vesti gátum við afgreitt.

Condor varð gjaldþrota á árinu og því miður gátum við ekki afgreitt þær pantanir sem við höfðum tekið niður fyrr en nú. Seagull var reist á rústum Condor og munum við vonandi eiga farsæl viðskipti við það fyrirtæki. Við höfum þegar gert pantanir á eldfatnði bæði í Nomex efnum og Kevlar og væntanlega fáum við betra verð en áður. Þann fatnað munum við kynna á nýju ári. Við höfum óskað eftir breytingum á sniði og erum að vinna að breytingum í samvinnu við kunáttuaðila. Það sem við sækjumst eftir hjá Seagull er það sama og hjá Condor að geta pantað sérsaumað fyrir hvern og einn.

Seagull vesti

 Ef þið hafið áhuga að panta eða frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.